Í byrjun skólaárs er unnið með virðingu, hegðun, kurteisi, framkomu. Reglur eru í hávegum hafðar í skólastarfinu, röð, regla og rútína í fyrirrúmi á öllum sviðum. Skipulagt umhverfi alls staðar og sýnilegt hvernig allt á að vera. Úthugsuð dagskrá og einfaldleiki í öllu skipulagi. Í starfinu inni á deildum er áherslan á skarpa nemendastjórnun með nákvæmri eftirfylgd og hegðunarreglum sem börnin taka þátt í að móta, kynna og endurskoða. Þjálfun í kurteisi og mannasiðum, æfing í að heilsast og kveðjast, borðsiðir og umgengni um fataklefa eru raunveruleikatengd verkefni. Framkoma í kynjablöndun æfð sérstaklega. Munum að æfa okkur líka því árangur barnanna ræðst af þeim aga sem við náum að sýna, til dæmis varðandi frágang, kyrrlátar raðir milli staða, stundvísi og fleira.