Lögð er áhersla á kyrrláta stund eftir hádegisverð þar sem börnin leggjast á dýnu, yngstu börnin sofna og þau eldri hlusta á sögu eða tónlist. Góður svefn er undirstaða vellíðunar og fer eftir þörfum hvers barns, sum börn þurfa að sofna allt til fjögurra ára en önnur hætta fyrr að sofa, öll þurfa þó að fá hvíld í dagsins önn. Hafa ber í huga að barn sem er úrvinda af þreytu á erfiðara með að takast á við daginn.